Bergur Jónsson (1934-2011) verkfræðingur ()

 

Grunngögn

ID nafnBergur Jónsson (1934-2011) verkfræðingur ()
 

Upprunaupplýsingar

Stofnár/fæðingardagur 5.2.1:1934
Saga 5.2.2:Bergur Jónsson fæddist í Reykjavík 16. apríl 1934. Hann lést á líknardeild Landspítalans, Landakoti, 28. september 2011. Foreldrar hans voru Bergþóra Bergsdóttir, húsmóðir, f. 8.11. 1904 í Reykjavík, d. 4.5. 1972 í Reykjavík og Jón Björnsson, húsgagnabólstrari, f. 31.8. 1903 í Karlsskála við Reyðarfjörð, d. 28.6. 1985 í Stykkishólmi. Bergur kvæntist 5.10.1957 Ingunni Guðmundsdóttur, bókasafns- og upplýsingafræðingi, f. 25.3. 1934 að Efri-Brú í Grímsnesi. Bergur og Ingunn eignuðust fjögur börn.

Bergur lauk stúdentsprófi frá MR 1954 og tók lokapróf (Dipl.-Ing.) í rafmagnsverkfræði frá Technische Hochschule í München, Þýskalandi 1961. Bergur vann sem verkfræðingur hjá Siemens í Erlangen, Þýskalandi frá 1961-1966. Þegar heim var komið vann hann sem verkfræðingur og síðar deildarverkfræðingur hjá Landsvirkjun árin 1966-1979. Hann var rafmagnseftirlitsstjóri ríkisins frá 1979-1996 og vann ýmis verkefni fyrir iðnaðarráðuneytið frá 1997-1999. Hann var stundakennari við HÍ 1969-1990 og við TÍ 1970-1972. Bergur gegndi ýmsum trúnaðarstörfum innan Verkfræðingafélags Íslands á árunum 1970-1991. Hann átti sæti í Orðanefnd RVFÍ frá 1969, þar af gegndi hann formennsku frá 1984 til dánardags. Bergur hlaut heiðursmerki (Gullmerki) Verkfræðingafélags Íslands 1990. Hann var varamaður í stjórn Málræktarsjóðs 1992-2002. Bergur var virkur á mörgum sviðum félagsmála en þó var skátastarfið honum hjartfólgnast. Bergur gekk ungur í Skátafélag Reykjavíkur og var upp frá því sannur skáti allt til æviloka. Bergur stofnaði skátasveitina Landnema innan Skátafélags Reykjavíkur í janúar 1950 og var foringi hennar til 1953. Síðar varð sveitin að skátafélaginu Landnemar sem starfar enn af miklum þrótti. Bergur starfaði með félaginu alla tíð, m.a. sem félagsforingi í nokkur ár. Bergur var oft mótsstjóri skátamóta m.a. á landsmóti skáta við Úlfljótsvatn 1974. Fyrir störf sín innan skátahreyfingarinnar var Bergur sæmdur ýmsum heiðursmerkjum, bæði innlendum og erlendum. (Mbl.is. Minningargrein, 11. október 2011).