Geir Hallgrímsson (1925-1990) alþingismaður og ráðherra ()

 

Grunngögn

ID nafnGeir Hallgrímsson (1925-1990) alþingismaður og ráðherra ()
 

Upprunaupplýsingar

Stofnár/fæðingardagur 5.2.1:1925
Saga 5.2.2:Geir var fæddur í Reykjavík 16. des. 1925, d. 1. sept. 1990. For.: Hallgrímur Benediktsson (f. 20. júlí 1885, d. 26. febr. 1954) alþm. og k. h. Áslaug Geirsdóttir, f. Zoëga (f. 14. ágúst 1895, d. 15. ágúst 1967) húsmóðir. K. (7. júlí 1948) Erna Finnsdóttir (f. 20. mars 1924) húsmóðir. For.: Finnur Sigmundsson og k. h. Kristín Magnúsdóttir. Börn: Hallgrímur Benediktsson (1949), Kristín (1951), Finnur (1953), Áslaug (1955). Stúdentspróf MR 1944. Lögfræðipróf HÍ 1948. Framhaldsnám í lögfræði og hagfræði eitt ár við Harvard-lagaskóla, Bandaríkjunum. Hdl. 1951. Hrl. 1957.

Rak málaflutningsskrifstofu í Reykjavík 1951-1959. Forstjóri H. Benediktsson hf. 1955-1959. Borgarstjóri í Reykjavík 1959-1972. Skip. forsætisráðherra 28. ágúst 1974, fékk lausn 27. júní 1978, en gegndi störfum til 1. sept. 1978. Skip. utanríkisráðherra 26. maí 1983, fékk lausn 24. jan. 1986. Bankastjóri Seðlabanka Íslands frá 1986 til æviloka.

Formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík 1952-1954. Bæjarfulltrúi og síðar borgarfulltrúi í Reykjavík 1954-1974. Í stjórn Árvakurs hf., útgáfufélags Morgunblaðsins 1954-1986, formaður 1969-1986. Formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna 1957-1959. Í stjórn Landsvirkjunar 1965-1974. Í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins frá 1965. Sat fund Þingmannasamtaka Norður-Atlantshafsríkjanna 1971. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins 1971- 1973, formaður flokksins 1973-1983. Í Þingvallanefnd 1979-1980. Fulltrúi Íslands á fundi þingmannanefndar EFTA 1981.

Alþm. Reykv. 1970-1983 (Sjálfstfl.).

Vþm. Reykv. mars-maí og nóv. 1960, okt.? nóv. 1965, okt. 1966, okt.?des. 1967, febr., apríl og des. 1968, febr.?mars og okt.?nóv. 1969, allt þingið 1983-1984, nóv.?des. 1984, mars-apríl og maí 1985.

Forsætisráðherra 1974-1978. Utanríkisráðherra 1983-1986.