| Saga 5.2.2: | Hjúkrunarskóli Íslands var starfandi á árunum 1931 - 1986. Hann hét upphaflega hjúkrunarkvennaskóli Íslands en nafninu var breytt með lögum 1962 þegar karlmenn fóru að sækja í hjúkrunarsnámið. Skólinn starfaði lengi vel á Landspítalanum en fluttist í Eirberg sem nú hýsir Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Gögn skólans urðu eftir þar eftir að hann var lagður niður árið 1986. |