Félagsmálastofnun Reykjavíkur (Reykjavík)

 

Grunngögn

ID nafnFélagsmálastofnun Reykjavíkur (Reykjavík)
 

Upprunaupplýsingar

Annað heiti 5.1.5:Barnavernd Reykjavíkur
Stofnár/fæðingardagur 5.2.1:1968
Saga 5.2.2:(Eldra) skjalasafn Barnaverndar Reykjavíkur (BR) nær frá 1932-1968 og skiptist í skrifstofu barnaverndarnefndar og skrifstofu félags- og framfærslumála. Þurfamannaævir.

Þegar Félagsmálastofnun Reykjavíkur (FR) var stofnuð 1968 varð BR undirstofnun hjá FR. Skipulag FR: Fjármála- og rekstrardeild, Dagvist barna, Fjölskyldudeild, Sérdeildir og Skrifstofu Félagsmálastjóra. Nefndir og ráð FR. 1978 yfirtók FR rekstur dagvistarstofnana í eigu Reykjavíkur (áður á vegum Sumargjafar, áhugafélags um dagvistarmál). Dagheimili, leikskólar og skóladagheimili. Dagmæður. Dagvist barna frá 1978 til 1994 og Leikskólar Reykjavíkur frá 1994.

(Yngra) skjalasafn Barnaverndar Reykjavíkur (BR) inniheldur meðferðarmöppur barna fædd árið 1999/2000 eða fyrr. Í kjölfar gildistöku barnaverndarlaga nr. 80/2002 tók Barnavernd Reykjavíkur til starfa í núverandi mynd frá aldamótum 1999/2000.

Mál fyrir 1970 eru í eldra skjalasafni BR. Mál eftir 1970 eru í skjalasafni FR í meðferðarmöppum foreldra. Mál eftir 1999/2000 eru í meðferðarmöppum barna.