| |
Grunngögn |
| ID nafn | Héraðsdómur Norðurlands Eystra (Akureyri) |
| |
Upprunaupplýsingar |
| Erlent heiti 5.1.3: | The District Court of Northeast Iceland |
| Stofnár/fæðingardagur 5.2.1: | 1992 |
| Saga 5.2.2: | Héraðsdómstólanir voru stofnaðir 1. júlí 1992. Fram að því hafði dómsvald í héraði verið í höndum sýslumanna og bæjarfógeta, að minnsta kosti utan Reykjavíkur. Réttarfarslöggjöfin var endurskrifuð að stórum hluta á þeim tíma og með því var umboðsvald og dómsvald í héraði aðskilið og sjálfstæðum héraðsdómstólum var komið á fót um allt land. Síðan þá hefur réttarfarslöggjöfin verið óbreytt í megindráttum svo starfssemi héraðsdómstólana hefur verið í grófum dráttum óbreytt frá stofnun. |
| Hlutverk 5.2.5: | Héraðsdómur Norðurlands eystra er einn af átta héraðsdómstólum sem mynda lægsta dómstigið. Héraðsdómstólar fara með dómstörf, hver í sínu umdæmi, í opinberum málum og einkamálum. Öll dómsmál koma fyrst til úrlausnar fyrir einhverjum af héraðsdómstólunum.
Umdæmi Héraðsdóms Norðurlands eystra er ein dómþinghá, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1109/2010. Eftirtalin sveitarfélög heyra til umdæmis hans: Akureyrarbær, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit, Fjallabyggð, Grýtubakkahreppur, Hörgársveit, Langanesbyggð, Norðurþing, Svalbarðsstrandarhreppur, Tjörneshreppur og Þingeyjarsveit. |
| Tilheyrandi lög 5.2.6: | Lög um dómstóla nr. 50/2016 |
| Innra skipulag/ættir 5.2.7: | Við stofnunina starfa alls 5 starfsmenn að meðtöldum dómstjóra sem er forstöðumaður stofnunar. Samtals eru 2 dómarar, 1 aðstoðarmaður dómara og tveir dómritarar sem jafnframt sinna skjalavörslu dómstólsins. Núverandi dómstjóri er Arnbjörg Sigurðardóttir sem var skipuð frá 9. september 2022. |