Húsaskóli (Reykjavík)

 

Grunngögn

ID nafnHúsaskóli (Reykjavík)
 

Upprunaupplýsingar

Saga 5.2.2:1991
Lagaleg staða 5.2.4:Húsaskóli tók til starfa haustið 1991 í 6 færanlegum kennslustofum. Þá voru 127 nemendur í skólanum á aldrinum 6-9 ára í 8 bekkjardeildum og 14 starfsmenn störfuðu við skólann. Skólinn var byggður í 4 áföngum og var fyrsti áfanginn tekinn í notkun haustið 1992. Lokið var við skólabygginguna 1994 og gengið frá skólalóð haustið 1995 það sama ár var skólinn einsetinn. Fyrsti nemendahópurinn sem útskrifaðist út 10. bekk var árgangur 1980, þau útskrifuðust vorið 1996 alls 31 nemandi. Þegar Reykjavíkurborg tók við rekstri grunnskólans 1996 voru nemendur um 489 í 1.-10. bekk og starfsmannafjöldinn um 52. Fjölmennast var í skólanum haustið 2000 en þá voru 515 nemendur í skólanum í 26 bekkjardeildum og fjöldi starfs-manna var 62, þá voru einnig í notkun 6 lausar kennslustofur við skólann. Nemendafjöldinn í skólanum er núna haustið 2010 273 nemendur í 16 bekkjardeildum og starfsmannafjöldinn er 46. Húsakóli er grunnskóli fyrir börn á aldrinum 6-16 ára. Stefna og markmið Húsaskóla er: Að veita góða alhliða menntun og stuðla að þroska hvers og eins. Að stuðla að góðri líðan nemenda. Að stuðla að góðu samstarfi við foreldra. Að leggja áherslu á jákvætt, faglegt starfsumhverfi og starfsánægju. Í Húsaskóla er sérstök áhersla lögð á að byggja upp sjálfsmynd og sjálfstæði nemenda ásamt því að styrkja félagsfærni hvers og eins. Einkunnarorð skólans eru: Virðing, ábyrgð, vinátta, starfsgleði og samvinna og byggja þau á þeim lífsgildum sem skólinn hefur.