Gagnfræðaskóli Vesturbæjar (Reykjavík)

 

Grunngögn

ID nafnGagnfræðaskóli Vesturbæjar (Reykjavík)
 

Upprunaupplýsingar

Annað heiti 5.1.5:Gagnfræðaskóli Reykvíkinga, Ágústarskóli
Stofnár/fæðingardagur 5.2.1:1928
Saga 5.2.2:Þann 2. október 1928 tók til starfa Gagnfræðaskóli Reykvíkinga. Var hlutverk hans að taka við nemendum sem hafði verið vísað frá vegna tilskipan menntamálaráðuneytisins að taka aðeins við 25 nemendum í 1. bekk Menntaskólans í Reykjavík. Mörgum þeim er tóku inntökupróf við skólann og stóðust það var vísað frá. Í reynd var skólinn eins konar útibú frá Menntaskólanum þar sem nemendur úr skólanum fengu t.a.m. inngögnu próflaust í 5. bekk Menntaskólans. Forstöðu skólans gegndi dr. Ágúst H. Bjarnason og var hann rekinn sem einkaskóli fyrst um sinn. Skólinn starfaði lengi vel í Iðnskólahúsinu við Tjörnina. Árið 1945 flutti Gagnfræðaskóli Reykvíkinga í húsnæði gamla Stýrimannaskólans við Öldugötu. Árið 1958 fluttist skólinn í húsnæði Gagnfræðaskólans við Hringbraut. Til þess stóðu vonir um að skólinn yrði formlega gerður að öðrum menntaskóla en svo varð ekki. Var skólinn felldur inn í skólakerfið sakvæmt fræðslulögum frá árinu 1946 sem Gagnfræðaskóli Vesturbæjar (árið 1948). Skólinn varð aflagður árið 1969. Varast ber að rugla saman Gagnfræðaskóla Reykvíkinga (Ágústarskóla) og Gagnfræðaskóla Reykjavíkur (Ingimarsskóla) saman en um tvo sitthvora skólana er um að ræða. Heimildir: Einar Laxness, „Björn Þorsteinsson“, Saga XXV (1987), bls. 6-19. Einar Magnússon, „Lækkun stúdentsaldurs. „Duglitlir“ dúxar og semidúxar“, Lesbók Morgunblaðsins 22. júní 1968, bls. 8-10. Guðrún Guðlaugsdóttir, „Skrefið var stórt“, Morgunblaðið 19. oktbóer 2003, bls. 18-19.