| Saga 5.2.2: | Gagnfræðaskóli Reykjavíkur var fyrst settur þann 1. október 1928 undir nafninu Ungmennaskóli Reykjavíkur. Oft var skólinn einnig nefndur eftir Séra Ingimar Jónssyni, skólastjóra skólans, Ingimarsskóli. Skólinn hafði þá sérstöðu m.v. aðra gagnfræðiskóla og menntaskóla með gagnfræðideildum að nemendur þurfti ekki að greiða skólagjald og komust öll að sem vildu svo lengi sem húsrúm leyfði. Kennslan fór fram fyrstu árin í gamla Franska spítalanum við Lindargötu. Það hafði þá löngum verið viðloðandi húsnæðisvandamál skólans. Árið 1948 fékk skólinn nýtt húsnæði á Skólavörðuholtinu sem Guðjón Samúelsson húsameistara hannaði. Ári síðar eða árið 1949 breytti skólinn um nafn í Gagnfræðaskóla Austurbæjar. Árið 1974 breytti skólinn enn aftur um nafn og hét nú Vörðuskóli. Ástæða þess var að koma í veg fyrir misskilning og rugling á Gagnfræðaskóla Austurbæjar og Austurbæjarbarnaskóla. Árið 1977 tók Vörðuskóli yfir bóknámskennslu fyrir Iðnskólann í Reykjavík þar til skólinn var alfarið lagður niður árið 1982 og Iðnskólinn tók yfir starfsemi skólans. Varast ber að rugla saman Gagnfræðaskóla Reykvíkinga (Ágústsskóla) og Gagnfræðaskóla Reykjavíkur (Ingimarsskóla) saman en um tvo sitthvora skólana er um að ræða. Heimildir: „Gagnfræðaskóli Austurbæjar flyzt í nýja húsið í haust“, Vísir 11. júní 1948, bls. 8. „Gagnfræðaskóli Reykjavíkur lýkur 10. starfsári sínu“, Alþýðublaðið 25. apríl 1938, bls. 3-4. „Heitir nú Vörðuskóli“, Morgunblaðið 11. september 1974, bls. 32. „Iðnskólinn yfirtekur Vörðuskóla“, Dagblaðið Vísir – DV 15. júní 1982, bls. 30. |