| Saga 5.2.2: | Fossvogsskóli var fyrst settur 9. október 1971. Fyrsta starfsárið voru tveir árgangar í skólanum, sjö og átta ára börn. Skólahúsið var reist í þremur áföngum. Sá fyrsti, svokallað Vesturland, 1970-1971, annar áfangi, byggður 1974-1976 og þriðji áfangi Austurland var byggður 1998-1999. Fyrstu tvo áratugina bjó skólinn við mikil þrengsli en reynt var að leysa brýnasta vandann með lausum kennslustofum sem stóðu við skólann frá 1974 og allt til ársins 2000. Lengi þurfti að tvísetja nemendur í allar stofur. Flestir nemendur voru í skólanum skólaárið 1976-1977, en þá voru nemendur 752 talsins. Skólinn er hverfisskóli fyrir 6-12 ára börn í Blesugrófar- og Fossvogshverfi. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi í Fossvogsdalnum og eru greiðar gönguleiðir frá skólanum í Elliðaárdalinn og í Nauthólsvíkina sem eru ein af fallegustu útivistarsvæðum Borgarinnar. Skólinn hefur þróað einstaklingsmiðað nám í anda opna skólans. Áhersla er lögð á að koma til móts við mismunandi þarfir, hæfileika og áhuga hvers og eins. Með áætlunum eru nemendur þjálfaðir í að bera ábyrgð á eigin námi, auka sjálfstæði þeirra og efla frumkvæði. Þeir geta valið sér viðfangsefni og verða því virkari. Ein leið af mörgum til að auka einstaklingsmiðað nám og efla samvinnu og samkennd nemenda er að blanda árgöngum saman. Það er aðallega gert á valsvæðum og á sal eða samverustundum. Einkunnarorð skólans eru: Vertu til að leggja hönd á plóg. |