Foldaskóli (Reykjavík)

 

Grunngögn

ID nafnFoldaskóli (Reykjavík)
 

Upprunaupplýsingar

Saga 5.2.2:Skólinn tók til starfa haustið 1985 en byggingarframkvæmdum lauk 1991. Skólinn var dæmigerður „frumbyggja” skóli í nýju hverfi. Farið var af stað í hálfkláruðu húsnæði þar sem öllu ægði saman, iðnaðarmönnum, tækjum og tólum, kennurum og nemendum. Nemendum fjölgaði hratt og urðu flestir árið 1990 þegar nemendafjöldi fór rétt yfir 1200 og þá að meðtöldu útibúi í Hamrahverfi. Síðan hefur nemendum fækkað jafnt og þétt eftir því sem hverfið hefur elst. Skólaárið 2010-2011 eru nemendur um 360 talsins. Húsnæði skólans er að stofni til þrjár einingar eða sérstæð hús með tengibyggingu á milli. Vorið 2001 var tekin fyrsta skóflustunga að viðbyggingu þar sem komið var fyrir sérgreinastofum auk íþróttahúss. Kennslustofurnar (690 m2) voru teknar í notkun haustið 2002 um leið og skólinn var einsettur ásamt íþróttahúsi, sem er 12 x 24 m og 620 m2 með búningsklefum. Þá var nýtt mötuneytiseldhús tekið í notkun haustið 2003. Skólinn var móðurskóli í nýsköpun frá árinu 1998 til 2005 en það er hámarkstími slíkra verkefna. Kennsla í nýsköpun er fastur liður á stundaskrá nemenda í 4.-7. bekk. Foldaskóli er grænfánaskóli síðan 2006. Við skólann er starfrækt sérhæfð sérdeild (stofnuð haustið 2004) sem þjónustar nemendur með atferlistruflun og geðraskanir í sínum heimaskóla. Við skólann starfar Skólahljómsveit Grafarvogs. Samstarf um tónlistarkennslu er við Tónlistarskólann í Grafarvogi og Tónskóla Hörpunnar. Í húsnæði skólans rekur Gufunesbær (ÍTR) frístundaheimilið Regnbogaland, fyrir nemendur 1. - 4. bekkjar og félagsmiðstöðina Fjörgyn. Einnig er rekið tómstundastarf fyrir nemendur í 5. - 7. bekk eftir skóla ákveðna daga vikunnar. Útilistaverk á hringtorgi skólans heitir Foldagná (1993) og er eftir Örn Þorsteinsson. Skólastjóri Foldaskóla er Kristinn Breiðfjörð. Fyrrum skólastjórar skólans eru Arnfinnur Jónsson (1985-1992) og Ragnar Gíslason (1992-2002). Sjá nánar www.skolatorg.is/kerfi/foldaskoli/skoli/