Einholtsskóli - Hlíðarhúsaskóli (Reykjavík)

 

Grunngögn

ID nafnEinholtsskóli - Hlíðarhúsaskóli (Reykjavík)
 

Upprunaupplýsingar

Saga 5.2.2:Einholtsskóli var starfræktur í Einholti 2 í Reykjavík og dregur nafn sitt af götunni. Hlíðarhúsaskóli var starfræktur í Vesturhlíð 3, við hlið Heyrnleysingjaskólans. Árið 1972 var Upptökuheimili ríkisins stofnað að Kópavogsbraut 17 í Kópavogi. Þar voru vistaðir allt að 10 unglingar í einu í langtímameðferð og í kjallara hússins var rekinn skóli fyrir unglingana, Skóli Upptökuheimilis ríkisins. Haustið 1985 flutti meðferðarheimili UHR að Sólheimum 7 í Reykjavík en neyðarathvarf var áfram rekið í Kópavoginum. Samtímis flutti skólinn og starfsemi hans breyttist í meginatriðum því nú var honum ekki eingöngu ætlað að sinna þeim unglingum sem vistaðir voru á meðferðarheimilinu heldur gátu þeir haldið áfram skólagöngu þar þó vistun lyki. Jafnframt tók skólinn inn nemendur sem búsettir voru í foreldrahúsum eða annars staðar. Við stjórn skólans tók Guðlaug Teitsdóttir. Yfirstjórn var áfram í höndum forstöðumanns Unglingaheimilis ríkisins, Kristjáns Sigurðssonar og skólinn rekinn á sömu forsendum og aðrar deildir Unglingaheimilisins að því undanskildu að laun kennara voru fyrir utan fjárveitingar til Unglingaheimilisins. Kennarar voru tveir auk Guðlaugar og sinntu þeir jafnframt skjólstæðingum Neyðarathvarfsins í Kópavoginum. Fyrsta veturinn fékk skólinn inni til bráðabirgða í kjallara Vogaskóla og þótti sú staðsetning hentug vegna unglinganna sem sóttu skólann frá Sólheimum 7. Veturinn 1986 - 1987 var skólinn til húsa að Laugavegi 164 í húsnæði sem Landsbókasafnið hafði þá nýlega fengið til umráða. Haustið eftir var skólinn á götunni og flutti í september að Höfðabakka 9, skrifstofuhúsnæði sem var ætlað Tækniskóla Íslands. Um áramótin var gengið frá kaupum á húsnæði fyrir skólann að Einholti 2, þangað flutti skólinn í janúar 1988. Haustið 1988 voru þrír kennarar ráðnir í fullt starf auk "skólastjóra". Haustið 1990 lá fyrir að Unglingaheimili ríkisins stofnaði meðferðardeild fyrir unga vímuefnaneytendur að Tindum á Kjalarnesi og bættist þá ein kennarastaða við skólann þar sem Einholtsskóla var ætlað að sjá um kennslu skjólstæðinga Tinda. Frá því í janúar 1991 og þar til starfsemi Tinda var lögð niður sumarið 1996 sáu kennarar skólans um kennslu þeirra unglinga sem þar voru vistaðir, síðasta veturinn voru Tindar reknir sem dagdeild. Samkvæmt sérkennslureglugerð frá árinu 1990 varð Skóli Unglingaheimilis ríkisins sjálfstæður skóli og fékk þá nýtt nafn og "formlegan" skólastjóra. Þrátt fyrir stjórnunar- og skipulagslegar breytingar sinnir Einholtsskóli skjólstæðingum Unglingaheimilis ríkisins áfram á sama hátt og áður. Árið 1995 var nafni Unglingaheimilis ríkisins breytt í Meðferðarstöð ríkisins og Barnaverndarstofa tók við sem yfirrekstraraðili meðferðarheimila.