Brúarskóli (Reykjavík)

 

Grunngögn

ID nafnBrúarskóli (Reykjavík)
 

Upprunaupplýsingar

Saga 5.2.2:Brúarskóli varð til árið 2004 úr Einholtsskóla, Hlíðarhúsaskóla og Dalbrautarskóla. Brúarskóli rekur einnig Brúarsel, einingu í Seljaskóla og Stuðlum. Brúarskóli er grunnskóli rekinn af Reykjavíkurborg fyrir nemendur í 4.- 10. bekk. með alvarlegan geðrænan og tilfinningalegan vanda, sem eiga í félags- og hegðunarerfiðleikum eða sem eru komnir í vanda vegna fíkniefnaneyslu og/eða afbrota. Starfsemi Brúarskóla skiptist í kennslu í Vesturhlíð (4. - 10. bekkur), kennslu í Brúarseli, Kleifarseli 18 (5. - 7.bekkur), kennslu við Barna- og unglingageðdeild (1. -10. bekkur) og kennslu á Stuðlum (7. - 10. bekkur), auk ráðgjafarsviðs. Ráðgjafasvið þjónar bæði Brúarskóla og almennum grunnskólum. Sjá nánar bruarskoli.is.