Endurskoðunarnefnd laga um friðun Þingvalla og um náttúruvernd ()

 

Grunngögn

ID nafnEndurskoðunarnefnd laga um friðun Þingvalla og um náttúruvernd ()
 

Upprunaupplýsingar

Saga 5.2.2:Úr athugasemdum við frumvarp til laga um náttúrvernd, þingskjal 617 Alþingistíðindi 1969-1970 A:

"Þann 18. apríl 1968 var samþykkt á Alþingi eftirfarandi þingsályktun um náttúruvernd, friðun Þingvalla og þjóðgarða: „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta endurskoða lög nr. 59 1928, um friðun Þingvalla, og lög nr. 48 1956, um náttúruvernd, og semja fyrir næsta reglulegt Alþingi frumvarp til nýrra laga um náttúruvernd, friðun Þingvalla og þjóðgarða. Endurskoðunin miði að því að auka náttúruvernd og auðvelda almenningi aðgang að heppilegum stöðum til útivistar og náttúruskoðunar. Einnig verði verk og valdsvið Náttúruverndarráðs og Þingvallanefndar skilgreint sem gleggst.“ Með bréfi, dags. 28. júní 1968, skipaði menntamálaráðherra nefnd í tilefni af þingsályktuninni. í nefndina voru skipaðir: Birgir Kjaran, formaður, Benedikt Gröndal, Eysteinn Jónsson og Gils Guðmundsson.

[...]

Til úrvinnslu á ofangreindum gögnum og til aðstoðar við samning frumvarps og greinargerðar fékk nefndin þá Ragnar Jónsson hæstaréttarlögmann og dr. Guðmund E. Sigvaldason jarðfræðing, sem jafnframt var framkvæmdastjóri og ritari nefndarinnar. Í byrjun naut nefndin enn fremur aðstoðar Knúts Hallssonar fulltrúa menntamálaráðuneytisins."