| Saga 5.2.2: | Ártúnsskóli er stofnaður árið 1987 og er staðsettur í Árbæjarhverfi. Ellert Borgar Þorvaldsson var ráðinn skólastjóri og hann stjórnaði skólanum til 20. desember 2006. Rannveig Andrésdóttir tók við af honum. Árgangarnir eru sjö talsins. Það er alltaf lífsleikniþema í gangi, þemu sem hafa verið eru til dæmis: frelsi, fjölmenning og hreysti, í lok hreysti þemans var sett upp íþróttabraut í íþróttasalnum. Árið 2006 fékk skólinn íslensku menntaverðlaunin eða Forsetaverðlaunin eins og þau hafa verið kölluð. Starfsmenn skólans eru 34 talsins. Í skólanum eru svokallaðir vinabekkir þar sem eldri og yngri bekkir vinna saman verkefni og mynda vináttutengsl. Stofurnar hafa allar nöfn á bæjum í Árbæjarsafni sem eru í nágrenninu. Félag Ungmenna í Ártúnsskóla var stofnað 29. apríl 2005. 5.,6. og 7. bekkur eru í stjórninni en allir aðrir bekkir hafa fulltrúa í FUÁ. Í hverjum bekk er kosið hver verður fulltrúi bekkjar síns. FUÁ hefur verið starfandi síðan árið 2005 og máttu þá nemendur bjóða sig fram til að verða kosnir og allir nemendur skólans höfðu kosningarétt. Árið 2012 sameinuðust frístundaheimilið Skólasel og leikskólinn Kvarnaborg við grunnskólann Ártúnsskóla. Heimild: http://is.wikipedia.org/wiki/%C3%81rt%C3%BAnssk%C3%B3li |