Árbæjarskóli (Reykjavík)

 

Grunngögn

ID nafnÁrbæjarskóli (Reykjavík)
 

Upprunaupplýsingar

Stofnár/fæðingardagur 5.2.1:1956
Saga 5.2.2:Árbæjarskóli er einn stærsti grunnskóli landsins, staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Skólinn á sér rúmlega 40 ára starfssögu. Á árunum 1956-1966 var Árbæjarskóli starfræktur í samkomuhúsi á Árbæjarblettinum, þar sem kennt var í þremur deildum, en haustið 1967 hóf skólinn göngu sín í nýju húsi með 421 nemanda. Í dag er Árbæjarskóli grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Hann er einsetinn og eru nemendur hans um 700 talsins. Skólinn er safnskóli á unglingastigi en þá koma til náms nemendur úr Árbæjarskóla, Ártúnsskóla og Selásskóla. Starfsmenn skólans eru 91 sem sinna mismunandi stöfum í þágu nemenda. Með stjórnun skólans fara auk skólastjóra, tveir aðstoðarskólastjórar, deildarstjóri, tveir verkefnastjórar, nemendaráð og skólaráð. Einkunnarorð Árbæjarskóla eru: Ánægja-Áhugi-Ábyrgð-Árangur. Skjöl Árbæjarskóla voru geymd í kjallara Árbæjarskóla þar flæddi tvisvar sinnum og eyðilagði vatnið nær öll eldri skjöl skólans.