Álftamýrarskóli (Reykjavík)

 

Grunngögn

ID nafnÁlftamýrarskóli (Reykjavík)
 

Upprunaupplýsingar

Stofnár/fæðingardagur 5.2.1:1964
Saga 5.2.2:Álftamýrarskóli er heildstæður grunnskóli með 350 nemendur. Starfsmenn eru 60 talsins. Skólinn hóf starfsemi haustið 1964. Kennarar og starfsfólk skólans leggur áherslu á að styrkja sjálfsmynd nemenda sem forsendu fyrir námi og vellíðan. Við viljum hafa sem mesta fjölbreytni í námi. Það gerum við með þemavikum, útikennslu, aðventuhátíð, vetrahátíð, vordögum, gróðursetningu, starfi í grenndarskógi, haust og vorferðum, lokaverkefni í 10. bekk og svo mætti lengi telja. Mikið íþróttalíf er í skólanum og tengist hluti af því íþróttafélaginu Fram. List og verkgreinar eru og ríkur þáttur í náminu. Við skólann er starfandi öflugt námsver þar sem nemendur fá sveigjanlega þjónustu og kennarar ráðgjöf. Álftamýrarskóli vill vera skóli í þróun og hefur síðastliðin ár unnið að tveimur þróunarverkefnum. Annað er breyttir kennsluhættir og samkennsla. Hitt verkefnið er útikennsla og grenndarskógur. Bæði verkefnin hafa verið spennandi og haft mikil áhrif á starfsemi skólans. Áfram verður unnið með þessa þætti en jafnfram lögð áhersla á nýbúakennslu.