| Saga 5.2.2: | Háaleitisskóli við Álftamýri var heildstæður grunnskóli með 385 nemendur. Starfsmenn voru 69 talsins. Skólinn hóf starfsemi sína haustið 2012. Kennarar og starfsfólk skólans lögðu áherslu á að styrkja sjálfsmynd nemenda sem forsendu fyrir námi og vellíðan. Mikil fjölbreytni var lögð upp með námi og var það gert með þemavikum, útikennslu, aðventuhátíð, vetrarhátíð, vordögum, gróðursetningu, starfi í grenndarskógi, haust-og vorferðum, lokaverkefni í 10. bekk og svo mætti lengi telja. Mikið íþróttalíf var í skólanum og tengist hluti af því íþróttafélaginu Fram. List-og verkgreinar voru ríkur þáttur í náminu. Við skólann var starfandi öflugt námsver þar sem nemendur fengu sveigjanlega þjónustu og kennarar ráðgjöf. Frá haustinu 2019, var starfandi stoðdeild fyrir hælisleitendur. Birta stoðdeild var skólaúrræði fyrir börn sem voru umsækjendur um alþjóðlega vernd. Þegar Reykjavikurborg var með börn á skólaaldri var það hlutverk málastjóra hjá Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða að senda inn umsókn um skólavist fyrir þau börn í stoðdeildina Birtu. Í Birtu var tekið á móti nemendum eins fljótt og kosturvar, eftir að þeir komu til landsins og Reykjavikurborg hefur tekið á móti þeim. Háaleitisskóli við Álftamýri og Háaleitisskóli við Stóragerði var sameinaður úr tveimur skólum haustið 2012, þ.e. Álftamýrarskóla og Hvassaleitisskó1a. Haustið 2020 var skólunum síðan skipt upp aftur og fengu þeir þá sín upphaflegu nöfn aftur |