| Saga 5.2.2: | Breiðholtsskóli tók til starfa 1969 og er staðsettur í hjarta Breiðholtshverfis við Arnarbakka 1-3. Auk skólahússins er þar skólasundlaug og stórt íþróttahús. Skólinn er með nemendur í 1. til 10. bekk og haustið 2019 voru nemendur rétt rúmlega 400 og starfsmenn telja 65. Lögð er áhersla á árangur fyrir alla nemendur og einkunnarorðin ábyrgð, traust og tillitssemi eru leiðarljós í daglegu starfi skólans. Skólinn státar af fjölmenningarlegu samfélagi nemenda, foreldra og starfsmanna og lögð er áhersla á að efla vellíðan, sjálfstraust og námsgleði nemenda og að hver og einn fái að njóta sín sem best og fá tækifæri til að láta drauma sína rætast. Lögð er áhersla á læsi, félagsfærni og sjálfseflingu. Fjölbreyttir kennsluhættir og námsgleði nemenda skipta einnig miklu máli því ánægðir og glaðir nemendur eiga auðveldara með að nýta sér metnaðarfulla kennslu samhentra kennara. Í Breiðholtsskóla er lögð áhersla á gagnvirka teymisvinnu kennara sem koma að kennslu sömu nemenda. Þetta táknar að innan hvers árgangs starfa saman all nokkrir kennarar sem ráðfæra sig við hvern annan um hvernig best sé hægt að vinna með nemendahópinn. Hér eru umsjónarkennarar bekkjardeilda í fararbroddi því þeir skipuleggja saman námsefni annarinnar, markmið, leiðir og umbun. Þar sem eru tvær eða fleiri bekkjardeildir skipuleggja umsjónarkennararnir ákveðið flæði á milli hópa í afmörkuðum verkefnum. Þannig veljast saman í hópa nemendur úr báðum eða öllum "bekkjum" í t.d. hópverkefni í íslensku, stærðfræði eða aðrar námsgreinar. Það getur einnig komið til að tveir eða þrír hópar í stærðfræði fara dýpra í ákveðið efni sem unnið er með samkvæmt kennsluáætlun. Í einum hóp er þá verið að festa betur grunnhugtök og grunnaðferðir til að tryggja að nemendur í þeim hópi nái þeim grunntökum sem þeir hafa áður átt erfitt með en eiga auðveldara að ná tökum á í fámennum hópi. Annar hópur er þá mögulega í viðbótarverkefnum þar sem verið er að þjálfa áfram þær stærðfræðiaðferðir sem nemendur hafa verið að vinna með og sá hópur er almennt fjölmennastur. Í þriðja hópnum eru síðan nemendur sem þurfa að fá erfiðari verkefni til að glíma við þar sem þeir hafa áður sýnt að þeir eru alveg öruggir á stærðfræðiaðferðum sem unnið er með samkvæmt kennsluáætlun. Á þennan hátt leggja kennarar sig eftir því að þjónusta nemendahópinn sem best, allir þurfa að fá að njóta sín. Þá er Frístundaheimilið Bakkasel starfrækt innan skólans og einnig félagsmiðstöðin Bakkinn. |