| Saga 5.2.2: | Guðlaug Elín Úlfarsdóttir var fædd í Fljótsdal, Fljótshlíðarhreppi, Rangárvallasýslu 24. janúar 1918. Foreldrar hennar voru Úlfar Jónsson bóndi í Fljótsdal (f. 1864 – d. 1878) og Kristrún Kristjánsdóttir (f. 1878 – d. 1971) frá Árgilsstöðum. Guðlaug var ein af 18 systkinum, þrjú alsystkini átti hún og fimmtán hálfsystkini. Guðlaug ólst upp í Fljótsdal en fluttist til Reykjavíkur með móður sinni og yngri bræðrum. Starfaði hún að mestu við hannyrðir alla sína ævi. Fyrst á Prjónastofunni Malín, svo Hannyrðaverslun Þuríðar Sigurjónsdóttur, síðar í Hannyrðaversluninni Erla og síðast við saumastofuna Últíma. Þann 17. maí 1941 kvæntist Guðlaug Sigmari Kristinssyni módelsmiði (f. 1909 – d. 1978) og bjuggu þau að Mánagötu 1 í Reykjavík allan sinn búskap. Guðlaug og Sigmar eignuðust fjögur börn, þrjá syni og eina dóttur; Rúnar Gunnar Sigmarsson (f. 1941), Úlfar Ágúst Sigmarsson (f. 1946), Kristinn Sigmarsson (f. 1948) og Sigrúnu Sigmarsdóttur (f. 1952). Guðlaug átti fyrir dótturina Helgu Haraldsdóttur (f. 1938 – d. 2014) með Haraldi Salómonssyni (f. 1901 – d. 1971). Guðlaug lést þann 20. apríl 2002. |