| Saga 5.2.2: | Árið 1917 voru bráðabirgðarlög nr. 14 sett til að stemma stigu við hækkun húsaleigu í Reykjavík en húsaleiga hafði hækkað úr öllu valdi vegna húsnæðisskort. Lög nr. 24/1917 um húsaleigu í Reykjavík voru síðar samþykkt af Kristjáni tíunda Danakonungi. Samkvæmt þeim skyldi Húsaleigunefnd skipuð 5 mönnum. Landsyfirdómur skyldi skipa formann og varaformann, stjórnarráðið tvo nefndarmenn og tvo varamenn og bæjarstjórn tvo nefndarmenn og tvo varamaenn. Húsaleigunefndin var leyst upp þann 16. júní 1926 eftir konungsstaðfestingu þann 15. júní sama ár. Húsaleigunefnd Reykjavíkur tók aftur til starfa í ágúst 1979 sakvæmt lögum nr. 44/1979 og starfaði til ársins 1984.
Heimildir: ast. „Skúli Thoroddsen um bráðabirðalög um húsaleigu „Mikil bót að lögunum““, Þjóðviljinn 6. maí 1983, bls. 6. „Bæjarfréttir", Vísir 16. júní 1926. Páll Líndal. Reykjavík. Byggðarstjórn í þúsund ár (Reykjavík, 1986). |