IS-ÞÍ-0424-0000-268-A-A-0001-06 Jarðabók Austur-Skaftafellssýslu 1708-1709, auk bréfa er tengjast síðasta eiganda skjalabókarinnar. \ \ Innihald: \ 1) Bls. 1-59: Jarðabók Ísleifs sýslumanns Einarssonar um Austur-Skaptafellsþing, er hann ..., 1708-1709 (Örk)

Samhengi skjalaskráa

 

Almennar upplýsingar

Auðkenni 3.1.1:IS-ÞÍ-0424-0000-268-A-A-0001-06
Skjalamyndari 3.2.1: Jarðabækur - sérsafn ()
Heiti 3.1.2:Jarðabók Austur-Skaftafellssýslu 1708-1709, auk bréfa er tengjast síðasta eiganda skjalabókarinnar. Innihald: 1) Bls. 1-59: Jarðabók Ísleifs sýslumanns Einarssonar um Austur-Skaptafellsþing, er hann ...
Yfirlit og innihald 3.2.1:Jarðabók Austur-Skaftafellssýslu 1708-1709, auk bréfa er tengjast síðasta eiganda skjalabókarinnar. Innihald: 1) Bls. 1-59: Jarðabók Ísleifs sýslumanns Einarssonar um Austur-Skaptafellsþing, er hann gerði 1708 og 1709 í umboði Árna Magnússonar. 2) Bls. 39-53: Skrá frá 1712, eptir Ísleif sýslumann Einarsson, um eyddar jarðir í Öræfum, ásamt skrá eptir Jón sýslumann Helgason um eyðijarðir 1783 í Lóni, Nesjum og Fellshverfi. 3) Bls. 53-59: Frásögn síra Einars Hálfdanarsonar um hlaupið úr Öræfajökli 1727. [1)-3) er sérprent úr Blanda 1. Reykjavík 1918-1920, bls. 1-59.] 4) Bls. i-ii: Útdráttur af jarðabók yfir Skaftafellssýslu sem sýslumennirnir Ólafur og Ísleifur Einarssynir samantóku árið 1697, samt samdi Ísleifur enn greinilegar yfir Lón, Holtahrepp og Suðursveit árin 1708 og 1709 vegna secretera Árna Magnússonar og einhver líklega samið yfir Öræfin 1709 orðaður, svo vítt skeð gat í bráð, eftir boðleið austan frá Lónsheiði vestur úr, alt að Sólheimasandi, í decembr. 1814. [...] Þetta er skrifað upp úr rytju sem fannst við Austur Skaptafellssýslu bréfasafn og aftur afhendist sýslumanni Br. [Bergi] Benidiktssyni. bls. 1-38: Extract af þeirri jarðabók sem sýslumaðurinn Ísleifur Einarsson samantók í autsur parti Skaptafellssýslu vegna kongl. majts. secreteri Árna Magnússonar Anno 1708 og 1709, um jarðanna dýrleika, kúgildi og ítök. Item um kvaðir. 4) Bls. 39: Athugasemdir við textann 5) Bls. 40: Athugasemdir um Kirkjubæjarklaustursjarðir. 6) Bréf til Jóns Þorkelssonar frá M. Magnússyni, Skaptárdal 14. maí 1890. 7) Bréf til Jóns Þorkelssonar frá Þorleifi Jónssyni, Hólum 23. nóv. 1915 8) Eitt blað með hendi Jóns Þorkelssonar. Kvæðauppskriftir úr Skaftafellssýslum. Á bls. i með hendi Jóns Þorkelssonar: "Frá Ólafi Pálss. á Höfðabrekku 31/3 [18]91." Ólafur Pálsson (1830-1894) var umboðsmaður þjóðjarða í V-Skaftafellssýslu frá 1879 og þingmaður V.-Skaftfellinga 1881-1891 (ÍÆ IV, bls. 75). Samkvæmt útgáfu Jóns Þorkelssonar í Blöndu 1 er þetta handrit þar nr. 3 (Skaptárdalsbók), sjá bls. 4-5. Sjá einnig útgáfu sama texta Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns 13. Fylgiskjöl. Reykjavík 1990, bls. xi-xiii, 417-438. M.h. Hannesar Þorsteinssonar: "Afhent Þjóðskjalasafni frá Guðbrandi Jónssyni 15. júní 1925." Guðbrandur var sonur Jóns Þorkelssonar þjóðskjalavarðar.
Tímabil 3.1.3:1708 - 1709
Upplýsingastig 3.1.4:Örk
Athugasemdir 3.6.1:Jarðabækur af misljósum uppruna sem voru lengi vel geymdar óskráðar aftan við skjalasafn Rentukammers og stóðu eftir í reiðileysi þegar það var flutt.

Ítarupplýsingar

Tungumál 3.4.3:Íslenska
 

Aðgengi að skjölum

Nauðsynleg leyfi:Enginn
Ástand skjala:Án takmarka
Aðgengi:Almennt
 

Vefslóð á þessa færslu

Vefslóð:https://skjalaskrar.skjalasafn.is/detail.aspx?ID=1180864
 
Upphafssíða|Pöntunarkarfaengar færslur|Innskráning|is en
SKJALASKRÁR