|
IS-ÞÍ-0424-0000-268-A-A-0001-04 Jarðabækur 1695 og 1709 af Suður- og Vesturlandi, auk jarðaskjala að mestu úr Rangárvallasýslu. \ \ Titilblað: \ "Jarðabækur yfir Vestmannaeyjar, Rangárvalla- og nokkuð af jörðum í Árnes-, Gullbringu- og K ..., 1382-1803 (Örk)
| |
Almennar upplýsingar |
| Auðkenni 3.1.1: | IS-ÞÍ-0424-0000-268-A-A-0001-04 |
| Skjalamyndari 3.2.1: | Jarðabækur - sérsafn () |
| Heiti 3.1.2: | Jarðabækur 1695 og 1709 af Suður- og Vesturlandi, auk jarðaskjala að mestu úr Rangárvallasýslu.
Titilblað:
"Jarðabækur yfir Vestmannaeyjar, Rangárvalla- og nokkuð af jörðum í Árnes-, Gullbringu- og K ... |
| Yfirlit og innihald 3.2.1: | Jarðabækur 1695 og 1709 af Suður- og Vesturlandi, auk jarðaskjala að mestu úr Rangárvallasýslu.
Titilblað:
"Jarðabækur yfir Vestmannaeyjar, Rangárvalla- og nokkuð af jörðum í Árnes-, Gullbringu- og Kjósarsýslum, ásamt Skálholtsjörðum. Hvar í tilgreinast nöfn jarðanna og þeirra dýrleiki, kúgildi, eignir og ítök til lands og vatns, nöfn jarðanna eigenda og þeirra ábúenda, allur kvikfénaður og hvað mikinn pening hver jörð kann að fóstra á vetur, landskuldarhæð ásamt skaðræði sem hver jörð er undirorpinn.
Ein af þeim er samanskrifuð á þingum af sýslumönnum eftir almúgans undirréttingu á 1695ta ári.
Önnur er samantekin og skrifuð, og so eftir almúgans undirréttingu að forlagi Árna Magnússonar secretera á þeim árum frá 1708 að því meðreiknuðu til 1711 og svo að því meðreiknuðu.
Skálholt jarðabók sú elsta samanskrifuð fyrir árið 1693. Önnur samantekin árið 1695 og sú þriðja prentuð í Kaupinhafn ásamt Skálholts jarðasölu skilmálunum árið 1785.
Skrifaðar á Skarfanesi í Landmannahrepp á þeim árum 1786/1787/1788 af OAE* [grískir stafir = Þorsteinn Halldórsson]."
Innihald:
Bls. 1-3: "Jarðabók yfir Vestmannaeyjar samantekin og uppskrifuð af sýslumanninum Ólafi Árnasyni eftir bréflegri befalningu eðla- og veleruverðugs herra lögmannsins Sigurðar Björnssonar, so sem samankomin almúgi á Vestmannaeyjum frambar og auglýsti, ásamt með heiðurlegum kennimönnum hér séra Oddi Eyjólfssyni yngra og séra Gissuri Péturssyni, Landskuldardýrleiki á sérhvörju býli og vallatal sem eftir fylgir. Anno 1695, 12. Novembris."
Bls. 3-13: Jarðabók í Rangárvallasýslu 1695.
Bls. 13 niðurlag: N.B. Sá jarðanna dýrleiki sem á spássíunni finnst eftir sumar jarðir, er settur af tilnefndum virðingarmönnum eftir befalningu hr. amtmanns hr. Christians Mullers anno 1697 so sem þær hafa af sandi og vötnum spillst frá sínum gamla dýrleika.
N.B. Sá jarðardýrleiki sem var á spássíunni á þeirri jarðabók, sem varla varð eftirskrifað fyrir fúa, sem þessi var eftirskrifuð, er hér innsettur í línurnar hjá sérhvörri jörðu.
Bls. 14-17: Jarðabók í Árnessýslu Anno 1695. (sjá niðurlag á bls. 17)
Bls. 17-18: Beneficia og kirknajarðir í Árnessýslu Anno 1695.
Bls. 18-22: Jarðabók í Gullbringusýslu samanskrifuð Anno 1695.
Bls. 22-24: Jarðabók í Kjósarsýslu Anno 1695.
Bls. 25-37: Jarðabók yfir Rangárvallasýslu. Anno 1709 þann 22. Novembris et seqventibus að Miðbæli undir Eyjafjöllum, var eftirskrifuð jarðabók samantekin og eftir tilsögn og undirréttingu almúgans.
Bls. 37-151: Anno 1709 þann 5ta Decembris et seqventibus að Holti undir Eyjafjöllum var eftirskrifuð jarðabók samantekin eftir tilsögn og undirréttingu almúgans, Rangárvallasýsla.
Bls. 151-152: Skálholtsdómkirkju jarðir í Flóa-, Skeiða- og Hreppaumboðum, ásamt með jarðanna landskuldar upphæð og kúgildafjölda sem á þeim var á þeirri 17du öld og þar fyrir áður Hekla brann 1693.
Bls. 152: Kóngsjarðir veittar Þorláki Arviðssyni í lén af Johann Klein 1667.
Bls. 153-155: Skálholts dómkirkjujarðir, dýrleiki, landskuld og kúgilda hvörrar |
| landskuld og kúgilda hvörrar jarðar anno 1695 og þar eftir.
Bls. 155: Þessi Skálholts jarðabók er skrifuð eftir fúnum og gömlum blöðum og því vantar hér kúgildi við sumar jarðir því það var af rifið.
Bls. 155-161: Skrif O.S.S. [Ólafs Stefánssonar] amtmanns til Norðlendinga 1772 um kúgildi jarðeigenda og þeirra ábyrgð.
Bls. 161-162: Forordning um landsdrottinn og leiguliða, samt annarrar ólöglegrar höndlunar aftekt á Íslandi, 15. maí 1705.
Bls. 162-200: Hér eftir fylgja ýmsra jarða: Lögfestur, máldagar, landamerki, dómslutning í landaþrætumáli, skipti á túnum, forlíkun um afrétt Rangárvalla eystri og ytri (Landmannahrepps), samt þingboðsseðill um þá tilskipuðu komission að meta allt jarðagóss á Íslandi etc.
Nánari innihaldslýsing á síðasta lið:
1) bls. 71-72: Landamerki Fíflholta, 1382.
2) bls. 163-164: Lögfesta Skarðs á Landi, 29. september 1687.
3) bls. 164-165: Lögfesta Klofa á Landi, 17. júní 1778.
4) bls. 165-166: Lögfesta Hrólfsstaðahellis, 8. júní 1791.
5) bls. 166-167: Lögfesta Keraugastaðasels, 24. apríl 1733.
6) bls. 167: Dómur um landaþrætu milli Merkur og Leirubakka, 4. september 1779.
7) bls. 167-168: Lögfesta Stóruvalla, 9. apríl 1782.
8) bls. 168-169: Lögfesta Skarfaness, 4. júní 1740.
9) bls. 169: Landamerki Heiðar og Geldingalækjar á Rangárvöllum, 28. apríl 1794.
10) bls. 169-170: Forlíkun um Landmannaafrétt, 16. september 1783.
11) bls. 170-171: Landamerki Kirkjubæjanna á Rangárvöllum, 24. júní 1801.
12) bls. 171: Lögfesta sömu jarða, 27. júní 1801.
13) bls. 171: Skipti á túnum á Galtalæk, 24. júlí 1800.
14) bls. 172: Kaupbréf fyrir Selsundi, 9. október 1732.
15) bls. 172: Lögfesta fyrir Selsundi, 3. júní 1789.
16) bls. 172-173: Byggingarbréf fyrir Sandhólaferju, 28. desember 1738.
17) bls. 173: Lögfesta fyrir Þorleifsstöðum, 22. júlí 1762.
18) bls. 173-174: Lögfesta fyrir Þorleifsstöðum, 24. júlí 1780.
19) bls. 174: Lögfesta fyrir Þorleifsstöðum, 18. júní 1788.
20) bls. 174-175: "Máldagi" fyrir Merkihvoli, 18. nóvember 1802.
21) bls. 175: Lögfesta fyrir Merkihvoli, 20. maí |
| maí |
| Tímabil 3.1.3: | á milli 1382 og 1803 |
| Upplýsingastig 3.1.4: | Örk |
| Athugasemdir 3.6.1: | Jarðabækur af misljósum uppruna sem voru lengi vel geymdar óskráðar aftan við skjalasafn Rentukammers og stóðu eftir í reiðileysi þegar það var flutt. |
Ítarupplýsingar |
| Tungumál 3.4.3: | Íslenska |
|
| |
Aðgengi að skjölum |
| Nauðsynleg leyfi: | Enginn |
| Ástand skjala: | Án takmarka |
| Aðgengi: | Almennt |
| |
Vefslóð á þessa færslu |
| Vefslóð: | https://skjalaskrar.skjalasafn.is/detail.aspx?ID=1180862 |
| |
|