| |
Almennar upplýsingar |
| Auðkenni 3.1.1: | IS-ÞÍ-0424-0000-268-A-A-0001-02 |
| Skjalamyndari 3.2.1: | Jarðabækur - sérsafn () |
| Heiti 3.1.2: | Jarðabók Jens Söfrensen 1639.
Á saurblaði framan við bókina stendur með hendi Jóns Þorkelssonar:
"NB. Jarðab. Jens Sóffrinssonar 1639.
Landsb. 492 4to
Landsb. 111 4to"
Svo hefur verið skrifað neðan v ... |
| Yfirlit og innihald 3.2.1: | Jarðabók Jens Söfrensen 1639.
Á saurblaði framan við bókina stendur með hendi Jóns Þorkelssonar:
"NB. Jarðab. Jens Sóffrinssonar 1639.
Landsb. 492 4to
Landsb. 111 4to"
Svo hefur verið skrifað neðan við þetta með blýanti:
"Jarðab. 1638 í Leyndarskjalasafni kassa 4, 1559-1693."
Á upprunalegu saurblaði stendur:
"Dono b. D(omi)ni Isfiordii"
Þorlákur Magnússon Ísfjörð (um 1748-1781) var í Skálholtsskóla 1767-1770, í Kaupmannahafnarháskóla 1771-1776 og vann þá að uppskriftum fyrir danska sagnfræðinginn P.F. Suhm en um 38 handrit með hendi hans er að finna í konungsbókhlöðu í Kaupmannahöfn. Hann var skipaður lögsagnari Jóns sýslumanns Árnasonar 1776 og gegndi Snæfellsnessýlu eftir lát hans. Þorlákur var skipaður sýslumaður í Suður-Múlasýslu 1778 og hélt henni til æviloka. Hann bjó í Eskifirði. Kona hans var Soffía Erlendsdóttir, dóttir Erlends Ólafssonar sýslumanns í Ísafjarðarsýslu (Íslenzkar æviskrár V, bls. 160; Aðalgeir Kristjánsson, Bókabylting 18. aldar. Fræðastörf og bókaútgáfa upplýsingarmanna. Ritsafn Sagnfræðistofnunar 44. Reykjavík 2008, bls. 97-98).
Svo virðist sem að Þorlákur hafi gefið (dono) ókunnum eiganda umrædda skjalabók. |
| Tímabil 3.1.3: | 1639 |
| Upplýsingastig 3.1.4: | Örk |
| Athugasemdir 3.6.1: | Jarðabækur af misljósum uppruna sem voru lengi vel geymdar óskráðar aftan við skjalasafn Rentukammers og stóðu eftir í reiðileysi þegar það var flutt. |
Ítarupplýsingar |
| Tungumál 3.4.3: | Íslenska |
|
| |
Aðgengi að skjölum |
| Nauðsynleg leyfi: | Enginn |
| Ástand skjala: | Án takmarka |
| Aðgengi: | Almennt |
| |
Vefslóð á þessa færslu |
| Vefslóð: | https://skjalaskrar.skjalasafn.is/detail.aspx?ID=1180860 |
| |