| |
Almennar upplýsingar |
| Auðkenni 3.1.1: | IS-ÞÍ-0424-0000-268-A-A-0001-01 |
| Skjalamyndari 3.2.1: | Jarðabækur - sérsafn () |
| Heiti 3.1.2: | Jarðabók yfir konungseignir 1633-1634.
Innihald:
bl. 5r-10r: Vidöe Closters Jorder, som nu ligger til kong Maÿettes Gaard Bessestad, och der Samme stedtz ath Gielde deris Leiger og Landskyld.
bl. 10v ... |
| Yfirlit og innihald 3.2.1: | Jarðabók yfir konungseignir 1633-1634.
Innihald:
bl. 5r-10r: Vidöe Closters Jorder, som nu ligger til kong Maÿettes Gaard Bessestad, och der Samme stedtz ath Gielde deris Leiger og Landskyld.
bl. 10v-38r: Kong Maÿettes och Cronens Jorder Ligendis for Norden, Östenis, Sönden och Vesten paa Issland, och Kaldis Ombudtz Jorder. [Bæði umboðs- og klausturjarðir.]
bl. 38v-40v: auðar blaðsíður
bl. 41r-50v: Nu effterfolger en kort fortegnelse paa alle kong Maÿtettes och cronens Ombuds jorder, closters og sysslers aarlige och viisse affgifft.
Miðar á milli bl. 42-43 og 45-46 eru með hendi Árna Magnússonar handritasafnara.
Á bl. 5r stendur: "nonne 1639? St. svar jú St." Þetta er líkast til með hendi Steingríms Jónssonar biskups en hann spyr sig hvort bókin sé ekki frá 1639 og svarar því svo játandi.
Þessi skjalabók er komin frá Landsbókasafni og var áður Lbs 111 4to, sbr. athugasemd Jóns Þorkelssonar á fremra spjaldi bókarinnar. Jarðabækur A/1, örk 5 er úr sömu skjalabók og hefur fylgt í kjölfarið samkvæmt blaðatali. Sjá bréf Jóns Þorkelssonar til landshöfðingja, frá 29. desember 1900, þar sem hann fer fram á að fá nokkur handrit afhent frá Landsbókasafni. Þar segir: "4to 111. Orig. jarðabók höfuðsmanna c. 1630 um klaustur og sýslur. Gjafabréf viðvíkjandi prestaköllum." (ÞÍ. Skjalasafn Þjóðskjalasafns Íslands. BA/1. Bréfabók Landsskjalasafns 1900-1905, bls. 63).
Varðandi hvað annað var í þessu handriti áður en því var skipt upp eftir að það kom inn á Þjóðskjalasafn, sjá Skrá yfir prentaðar íslenzkar bækur og handrit í Stiptisbókasafninu í Reykjavík. Reykjavík 1874, bls. 136-137. |
| Tímabil 3.1.3: | 1633 - 1634 |
| Upplýsingastig 3.1.4: | Örk |
| Athugasemdir 3.6.1: | Jarðabækur af misljósum uppruna sem voru lengi vel geymdar óskráðar aftan við skjalasafn Rentukammers og stóðu eftir í reiðileysi þegar það var flutt. |
Ítarupplýsingar |
| Tungumál 3.4.3: | Íslenska |
|
| |
Aðgengi að skjölum |
| Nauðsynleg leyfi: | Enginn |
| Ástand skjala: | Án takmarka |
| Aðgengi: | Almennt |
| |
Vefslóð á þessa færslu |
| Vefslóð: | https://skjalaskrar.skjalasafn.is/detail.aspx?ID=1180859 |
| |